- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Naumir sigrar hjá One Veszprém og Barcelona

- Auglýsing -

Ungverska meistaraliðið One Veszprém og Spánarmeistarar Barcelona unnu andstæðinga sína í fyrri viðureignum átta liða úrslita Meistaradeildar karla í handknattleik í kvöld. One Veszprém lagði þýsku meistarana Füchse Berlin, 35:34, á heimavelli og Barcelona lagði Nantes í Frakklandi, 32:30, eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 19:18.

Síðari viðureignir liðanna fara fram á miðvikudaginn í Berlín og Barcelona.


Bjarki Már Elísson skoraði ekki mark fyrir One Veszprém að þessu sinni. Ivan Martinovic og Hugo Descat skoruðu átta mörk hvor fyrir ungverska liðið.

Mathias Gidsel skoraði 13 mörk fyrir Füchse Berlin-liðið sem hafði þriggja marka forystu þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:17.

Þetta var þriðja viðureign liðanna í Meistaradeildinni á leiktíðinni og í fyrsta sinn sem One Veszprém vinnur.

Uppselt var í keppnishöllina í Veszprém í kvöld og rífandi góð stemning. Ljósmynd/EPA

Heimsóttu gamla heimavöllinn

Viktor Gísli Hallgrímsson og Emil Nielsen markverðir Barcelona mættu á sinn gamla heimavöll í Nantes í kvöld og fóru með sigur úr býtum ásamt samherjum sínum í Barcelona, 32:30. Viktor Gísli varði sex skot, 27%. Nielsen náði sér ekki á strik og varði tvö skot.

Aleix Gómez var atkvæðamestur hjá Barcelona í jöfnum leik með níu mörk. Luís Frade og Domen Makuc skoruðu fjögur mörk hvor.

Kauldi Odriozola skoraði sex mörk fyrir Nantes. Gamla brýnið og fyrrverandi leikmaður Barcelona, Valero Rivera, skoraði fimm mörk eins og Nicolas Tournat.

Leikir í gærkvöld:

Magdeburg í vænlegri stöðu – Sporting stendur lakar að vígi

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -