Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir að minnsta kosti með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35: 28, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum sem fram fór í Szeged í Ungverjalandi í kvöld. Liðið mætast á ný í Magdeburg í næstu viku. Ekki gekk eins vel hjá Orra Frey Þorkelssyni og félögum í Sporting. Þeir misstu vænlega stöðu niður í jafntefli gegn Aalborg Håndbold á heimavelli, 31: 31.
Eftir jafnan fyrri hálfleik, en aðeins var eins marks munur að honum loknum, 15:14, tóku leikmenn Magdeburg öll völd í síðari hálfleik. Styrkleiki og breidd leikmannahópsins hjá Evrópumeisturunum naut sín. Ungverska liðið átti fá svör, ekki síst í varnarleiknum.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur hjá Magdeburg ásamt Svíunum Albin Lagergren og Felix Claar. Hver þeirra skoraði sjö mörk. Gísli átti einnig fjórar stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk. Elvar Örn Jónsson skoraði ekki en gaf ekkert eftir í vörninni og varð til að mynda að sætta sig við að vera vikið tvisvar af leikvelli.
Janus Daði Smárason lék allan leikinn fyrir Pick Szeged og skoraði fimm mörk auk tveggja stoðsendinga. Mario Sostaric var markahæstur með níu mörk.
Misstu niður forskot
Eftir jafna stöðu í hálfleik, 16:16, byrjuðu leikmenn Sporting afar vel og náðu snemma í síðari hálfleik fimm marka forskoti, 22:17. Liðið hélt áfram yfirhöndinni, þremur til fjórum mörkum. Danska liðið sýndi sínar bestu hliðar á síðustu 10 mínútunum og tókst að ná jafntefli, 31:31.
Orri Freyr skoraði tvö mörk fyrir Sporting. Francisco Costa var markahæstur með 12 mörk. Thomas Arnoldsen skoraði átta mörk fyrir Álaborgarliðið og Mads Hoxer sjö mörk.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmi leikinn í Lissabon.



