Arnór Snær Óskarsson tryggði Val sigur í þriðja úrslitaleiknum við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld, 32:30. Arnór Snær skoraði markið sem reið baggamuninn 25 sekúndum fyrir leikslok. Valur hefur þar með tvo vinninga í úrslitarimmunni en FH einn.
Næsti leikur liðanna fer fram í Kaplakrika á mánudagskvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Vinni Valur næsta leik innsiglar liðið sér Íslandsmeistaratitilinn. Sigur FH á mánudagskvöld þýðir að oddaleikur verður háður um Íslandsbikarinn í N1-höllinni eftir viku.
FH byrjaði leikinn betur í kvöld. Liðið tók upp þráðinn frá síðustu viðureign. Forskotið var þrjú mörk, 9:6, áður en lifaði yfir Valsmönnum að loknu leikhléi Ágústs Þórs Jóhannssonar. Valur vann sig inn í leikinn, ekki síst með betri varnarleik og komst í fyrsta sinn þremur mörkum yfir, 17:14. Í hálfleik skakkaði einu marki á fylkingunum, 18:17, fyrir Valsliðið.
FH hóf síðari hálfleikinn betur og komst yfir, 23:21. Valur svaraði fyrir og náði yfirhöndinni á ný. Tíu mínútum fyrir leikslok kom Arnar Snær Val fjórum mörkum yfir í fyrsta sinn, 29:25. FH-ingar reyndu hvað þeir gátu undir lokin að jafna metin en það gekk ekki. Öflugur varnarleikur Vals auk reynslu og skilvirks sóknarleiks skilaði liðinu vinningnum í þriðja úrslitaleiknum sem oft er talinn sá sálfræðilega mikilvægasti í úrslitakeppninni.
Mörk Vals: Bjarni í Selvindi 6, Arnór Snær Óskarsson 5/1, Allan Norðberg 4, Gunnar Róbertsson 4, Þorgils Jón Svölu Baldursson 4, Andri Finnsson 3, Daníel Montoro 2, Magnús Óli Magnússon 2, Björgvin Páll Gústavsson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/1, 30,2%.
Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 9, Birgir Már Birgisson 5, Jón Bjarni Ólafsson 4, Birkir Benediktsson 3, Garðar Ingi Sindrason 3, Kristófer Máni Jónasson 2, Leonharð Þorgeir Harðarson 2, Jakob Martin Ásgeirsson 1, Símon Michael Guðjónsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 9/1, 27,3% – Daníel Freyr Andrésson 2, 20%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



