„Við vissulega stefndum á árslok 2025 en ég gæti trúað því, með því að auglýsa samkeppnina núna í október, að ný þjóðarhöll gæti risið í árslok 2026 eða upphaf ársins 2027,“ segir Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll og fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik í samtali við Vísir í dag. Í janúar gerðu bjartsýnustu menn sér vonir um að þjóðarhöllinn yrði risin og tekin í notkun síðla árs 2025.
Breytir engu
Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2024 er lagt til að eitt hundrað milljón króna framlag til undirbúnings framkvæmda vegna Þjóðarhallar verði fellt niður. Gunnar segir að komi til þess að framlagið skili sér ekki hafi það ekki áhrif á þá vinnu sem standi yfir. Nefndin hafi fjármagn til þess að vinna áfram á næsta ári. Þegar hafi verið lagðar 200 milljónir í verkefnið af hálfu ríkisins annarsvegar og borgarinnar hinsvegar.
„Við erum bara að vinna með þá fjármuni í undirbúningsvinnu okkar og þurfum ekkert meira fé en það til þess að geta auglýst samkeppnina,“ segir Gunnar ennfremur við Vísir.
Kostnaðarskiptingin er eftir
Árum og áratugum saman hefur verið kallað eftir nýrri þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir. Í janúar var efnt til blaðamannafundar þar sem undirritaður voru pappírar og kynntar áætlanir um að framkvæmdir gætu hafist í upphafi næsta árs og að þjóðarhöllin yrði tekin í notkun haustið 2025. Enn liggur fyrir samkomulag um skiptingu kostnaðar á milli ríkis og borgarinnar.
Deiluskipulagi er lokið
Frá kynningarfundinum í janúar hefur all nokkuð vatn runnið til sjávar. Á meðan hefur m.a. verið dregið úr hugsanlegum framkvæmdahraða enda var fundinum vart lokið þegar byrjað var að tipla á hemlana. Hið jákvæða er þó að deiliskipulag á svæðinu í Laugardal er lokið en þar stendur til að byggja þjóðarhöllina.
Áfram á undanþágu
Þegar þjóðarhöll verður opnuð mun hún ráða bráðan bug á vanda landsliðanna í handknattleik og körfuknattleik sem hafa um langt árabil verið á undanþágu með leiki í undankeppni stórmóta í núverandi Laugardalshöll sem orðin er hart nær 60 ára. Einnig hefur HSÍ sýnt áhuga á að taka þátt í umsókn fleiri Norðurlanda um að halda HM karla 2029 eða 2031.
Brot af tengdum fréttum og pistlum í safni handbolti.is:
Þjóðarhöll á að verða tilbúin eftir þrjú ár
Tveir kostir um þjóðarhöll í Laugardal
Stór áfangi er í höfn í skipulagi vegna þjóðarhallar
Þjóðarhöllin verður opnuð haustið 2025 – kostnaður áætlaður 15 milljarðar
Hafist handa við byggingu þjóðarhallar í Þórshöfn