- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andlát: Jan Larsen fyrrverandi þjálfari KA og Þórs

- Auglýsing -

Daninn Jan Larsen, sem þjálfaði handboltalið KA snemma á níunda áratugnum og lið Þórs í upphafi þess tíunda, lést í gærmorgun í Danmörku eftir erfið veikindi. Akureyri.net greinir frá andláti Larsens í dag.


Larsen var fæddur 16. apríl 1956 og var því á 69. aldursári þegar hann lést. Eftirlifandi eiginkona hans er María Egilsdóttir sem fædd er á Akureyri árið 1957. Larsen og María kynntust á KA-árum hans á Akureyri. Dóttir Maríu, sem Jan ættleiddi, er Sigríður, búsett í Danmörku. Synir hennar eru Þórarinn Larsen og Egill Flóki Larsen.

Larsen fæddist í Ribe á Jótlandi. Hann hóf ungur að leika handbolta sem markvörður og byrjað snemma að þjálfa samhliða því. Larsen var aðeins hálfþrítugur þegar hann ákvað að freista gæfunnar og flytja til Akureyrar þar sem hann þjálfaði KA einn vetur, 1982 til 1983.

Larsen starfaði sem þjálfari og kennari í Danmörku eftir að fjölskyldan flutti utan á ný eftir veturinn með KA en þau María og Sigríður sneru aftur til Akureyrar árið 1990 þegar hann réð sig sem þjálfara hjá Þór. Því starfi gegndi hann í nokkur ár og kenndi einnig dönsku við Glerárskóla. Leiðin lá til Danmerkur á ný árið 1995 þar sem Larsen starfaði bæði við kennslu og þjálfun nokkurra liða með góðum árangri, og fræðslustörf á vegum danska handknattleikssambandsins.


Fjölskyldan settist að í fæðingarbæ Larsens, Ribe á Jótlandi, árið 2019 þar sem hann settist í stjórn síns gamla félags, Ribe HK og tók að sér þjálfun unglingaflokka hjá félaginu. Hann greindist með ólæknandi krabbamein snemma árs 2021.

Upplýsingar og mynd: Akureyri.net

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -