- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Stórleikur Orra Freys dugði ekki til sigurs

Orri Freyr Þorkelsson stóð fyrir sínu hjá Sporting Lissabon þegar liðið tapaði stórt fyrir HBC Nantes, 38:27, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í Nantes í Frakklandi í gærkvöldi. Orri Freyr skoraði sjö mörk úr níu skotum og var næstmarkahæstur hjá Sporting,...

Fær ekki að spila vegna blóðþynningarlyfja

Simon Hald, línumaður og varnartröll þrefaldra meistara Danmerkur, þarf að bíða enn um sinn eftir því að komast aftur á handboltavöllinn. Hald fann fyrir hjartsláttartruflunum í leik gegn Íslandi í undanúrslitum EM 2026 í Herning í lok janúar og...

Ráðningin á Aroni vekur athygli erlendra miðla

Ráðning FH á Aroni Pálmarssyni sem aðstoðarþjálfara karlaliðsins hefur vakið töluverða athygli hjá erlendum miðlum. Aron átti frábæran feril sem leikmaður áður en skórnir fóru á hilluna að loknu síðasta tímabili og vekur það sem hann tekur sér fyrir...

„Ég held kjafti“

Danski þjálfarinn Jan Pytlick, faðir eins besta handboltamanns heims, Simon, segir það erfitt að vera ekki stöðugt að gefa syni sínum ráð þó hann myndi glaður vilja gera það. Simon er einn af lykilmönnum danska landsliðsins sem nú er ríkjandi...
- Auglýsing-

Spánn hefur ráðið nýjan landsliðsþjálfara

Joaquín Rocamora hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Spánar. Rocamora tekur við starfinu af Ambros Martín og hefur þegar hafið störf. Hann hefur áður þjálfað yngri landslið kvenna hjá Spáni auk þess að þjálfa kvennalið Atticgo Elche frá árinu...

Miðasala á bikarvikuna í fullum gangi

Í næstu viku verður sannkölluð handboltaveisla þegar undanúrslit og úrslit Powerade bikars kvenna og karla fara fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Miðasala er í fullum gangi á Stubbi. Undanúrslit kvenna fara fram á miðvikudeginum 25. febrúar og undanúrslit karla...

Óvænt félagaskipti hjá Gunnari Steini

Gunnar Steinn Jónsson hefur ansi óvænt fengið félagaskipti til sænska félagsins Hammarby, sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi. Skiptin eru ekki síst óvænt vegna þess að skórnir hjá Gunnari Steini eru á hillunni. Handkastið greinir frá því að hann...

Dagskráin: Hafnarfjarðarslagur á Ásvöllum

Keppni í Olísdeildum karla og kvenna heldur áfram í kvöld þegar þrír leikir fara fram. Tveir leikir fara fram í 19. umferð Olísdeildar karla og einn í 18. umferð Olísdeildar kvenna. Hægt verður að horfa á alla þrjá leikina...
- Auglýsing-

„Ég er ekki með neinar skýringar á þessu“

Meiðslavandræði karlaliðs Stjörnunnar á yfirstandandi tímabili hafa verið með nokkrum ólíkindum. Tandri Már Konráðsson sleit hásin í upphafi tímabils, Pétur Árni Hauksson sleit krossband í hné í janúar, Gauti Gunnarsson sneri sig nýverið á ökkla og stuttu áður hafði...

Handboltahöllin: Eiginlega ótrúleg frammistaða hjá Hauki Inga

HK vann geysilega mikilvægan 36:31 sigur á Þór Akureyri í 18. umferð Olísdeildar karla síðastliðinn föstudag og spyrnti sér þannig frá neðstu liðunum og fór upp í áttunda sætið. Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var fjallað sérstaklega um...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
135 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -