- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bjarki Már vonast til þess að draumurinn rætist

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson, leikmaður One Veszprém í Ungverjalandi, var nýverið valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar í Ungverjalandi þegar liðið vann bikarmeistaratitilinn. Hann á sér draum um að komast í undanúrslitahelgina, „Final Four,“ í Meistaradeild Evrópu. Bjarki Már hefur aldrei á...

Handkastið stendur við umfjöllun sína

Handkastið hefur brugðist við yfirlýsingu stjórnar handknattleiksdeildar ÍR með nýrri frétt á síðu miðilsins. Þar kveðst Handkastið standa við umfjöllun sína um að tveir landsliðsmenn í kvennaliði ÍR hafi verið óánægðir með störf Grétars Áka Andersen þjálfara og að...

Tólf ára þjálfaratíð Dujshebaev hjá Kielce lokið

Talant Dujshebaev, Spánverjinn sem fæddist í Kirgistan, hefur látið af störfum hjá pólska liðinu Industria Kielce eftir tólf ára starf sem þjálfari liðsins. Samningur hans við félagið átti að renna út næsta sumar. Dujshebaev tók við sem þjálfari franska karlalandsliðsins...

Leikmenn knúðu fram frí með því að syngja fyrir þjálfarann

Leikmenn Füchse Berlín fá tveggja daga frí eftir 28:26 sigur á lærisveinum Guðjóns Vals Sigurðssonar í VfL Gummersbach í þýsku 1. deildinni í gærkvöldi. Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse, segir að leikmenn hafi biðlað til þjálfarans Nicolej Krickau með söng. „Við...
- Auglýsing-

Einstakur heimsmeistari lætur staðar numið

Nikolaj Øris, leikmaður Bjerringbro-Silkeborg til 22 ára, hefur tilkynnt að hann leggi skóna á hilluna að loknu yfirstandandi tímabili. Øris er fertugur og varð tvívegis heimsmeistari með danska landsliðinu. Hægri skyttan er einstök að því að leyti að hafa verið...

Kári framlengir á Seltjarnarnesi

Kári Kvaran, leikmaður Gróttu, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Kári er 24 ára vinstri hornamaður. Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Gróttu undanfarin ár og hefur alls leikið 74 leiki. Á nýafstöðnu...

Bjarni og Sólveig best hjá KA og KA/Þór

Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs fór fram á miðvikudagskvöld. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var valinn besti leikmaður karlaliðs KA og Sólveig Lára Kristjánsdóttir var kjörin besti leikmaður kvennaliðs KA/Þórs. Bjarni Ófeigur var næstmarkahæsti leikmaður Olísdeildarinnar og sá stoðsendingahæsti. Sólveig Lára lék...

ÍR svarar umfjöllun Handkastsins

Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hefur gefið út yfirlýsingu vegna umfjöllunar í hlaðvarpsþætti og á vefsíðu Handkastsins þar sem gert er að því skóna að landsliðskonur ÍR, þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Matthildur Lilja Jónsdóttir, hafi viljað þjálfarann Grétar Áka Andersen...
- Auglýsing-

Valur sópaði Fram í snemmbúið sumarfrí

Valur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaeinvígi Olísdeildar kvenna með því að leggja Fram að velli, 31:27, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum í N1 höllinni á Hlíðarenda. Valur vann einvígið 3:0 og sópar þar með Fram í...

Sandra og Embla fóru með himinskautum í tvíframlengdum sigri ÍBV

Sandra Erlingsdóttir átti magnaðan leik fyrir ÍBV og Embla Steindórsdóttir fyrir Hauka þegar fyrrnefnda liðið hafði betur, 38:37, eftir tvíframlengdan þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildarinnar í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBV er því 2:1 yfir í einvíginu og þarf...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -