Leikmenn Füchse Berlín fá tveggja daga frí eftir 28:26 sigur á lærisveinum Guðjóns Vals Sigurðssonar í VfL Gummersbach í þýsku 1. deildinni í gærkvöldi. Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse, segir að leikmenn hafi biðlað til þjálfarans Nicolej Krickau með söng.
„Við endurskrifuðum lag og sungum í búningsklefanum: „Við viljum tvo daga í frí!“ Loksins virkaði það að syngja fyrir þjálfarann. Við fáum í alvöru tveggja daga frí. Hann samþykkti lagið okkar,“ sagði Gidsel í léttum dúr í samtali við Sport Bild.
Leikmenn Füchse hafa staðið í ströngu að undanförnu; léku tvo leiki á jafnmörgum dögum er þeir urðu bikarmeistarar um síðustu helgi, spiluðu í gærkvöldi og eiga fyrir höndum tvo mikilvæga leiki gegn One Veszprém í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Hljómar betur fyrir strákana
„Ég heyrði lagið en ég hafði þegar ákveðið fyrir leikinn að gefa þeim frí, alveg óháð tapi eða sigri gegn Gummersbach. Auðvitað hljómar það betur fyrir strákana að lagið þeirra, krafan þeirra, hafi virkað á mig,“ sagði Krickau við Sport Bild.
Bætti hann því við að leikmennirnir þyrftu á fríi að halda, ekki bara vegna líkamlegs álags heldur einnig til þess að jafna sig andlega.



