- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handkastið stendur við umfjöllun sína

- Auglýsing -

Handkastið hefur brugðist við yfirlýsingu stjórnar handknattleiksdeildar ÍR með nýrri frétt á síðu miðilsins. Þar kveðst Handkastið standa við umfjöllun sína um að tveir landsliðsmenn í kvennaliði ÍR hafi verið óánægðir með störf Grétars Áka Andersen þjálfara og að því hafi hann verið látinn fara.

Kveðst miðillinn hafa áreiðanlegar heimildir fyrir og stendur við þá frásögn sína. Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hafði brugðist við umfjöllun Handkastsins með eigin yfirlýsingu sem má lesa hér:

Í yfirlýsingu ÍR sagði meðal annars að tilgreind atriði sem staðhæft var um í umfjöllun Handkastsins um aðdraganda starfsloka Grétars Áka ættu sér ekki stoð í raunveruleikanum.

Telja yfirlýsinguna staðfesta fréttaflutninginn

Handkastið veltir því þá upp hvort yfirlýsing ÍR hafi staðfest fréttir miðilsins um að Grétar Áki hafi verið látinn fara en ekki óskað eftir því sjálfur að láta af störfum eins og handknattleiksdeild ÍR hafði skýrt frá.

Vísað er til eftirfarandi orða í því samhengi: „Allar ákvarðanir er varða þjálfarateymi félagsins eru teknar af stjórn handknattleiksdeildar ÍR. Slíkar ákvarðanir eru teknar með hagsmuni félagsins, leikmannahópsins og framtíð kvennaliðsins að leiðarljósi og eru alfarið á ábyrgð stjórnarinnar.“


Ekki er hins vegar hægt að útiloka að með þessum orðum eigi Kristinn Jóhannsson formaður handknattleiksdeildar ÍR við að ákvörðun stjórnar í þessu tilfelli lúti að því að samþykkja beiðni Grétars Áka.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -