Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hefur gefið út yfirlýsingu vegna umfjöllunar í hlaðvarpsþætti og á vefsíðu Handkastsins þar sem gert er að því skóna að landsliðskonur ÍR, þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Matthildur Lilja Jónsdóttir, hafi viljað þjálfarann Grétar Áka Andersen á burt og að því hafi verið ákveðið að láta hann taka pokann sinn.
Stjórn handknattleiksdeildar ÍR segir það af og frá og að tilgreind atriði sem staðhæft var um í umfjöllun Handkastsins um aðdraganda starfsloka Grétars Áka ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum.
Yfirlýsing stjórnar handknattleiksdeildar ÍR í heild sinni:
„Stjórn handknattleiksdeildar ÍR vill koma eftirfarandi á framfæri vegna umfjöllunar sem birtist í hlaðvarpsþætti Handkastsins þann 22. apríl 2026 og á heimasíðu miðilsins um starfslok Grétars Áka sem þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍR.
Allar ákvarðanir er varða þjálfarateymi félagsins eru teknar af stjórn handknattleiksdeildar ÍR. Slíkar ákvarðanir eru teknar með hagsmuni félagsins, leikmannahópsins og framtíð kvennaliðsins að leiðarljósi og eru alfarið á ábyrgð stjórnarinnar.
Stjórn handknattleiksdeildar ÍR vill að fram komi að tilgreind atriði sem staðhæft var um í umfjöllun Handkastsins um aðdraganda starfsloka Grétars Áka eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum.
Stjórnin stendur heilshugar að baki leikmönnum sínum og telur umfjöllunina hafa verið óvandaða, ómálefnalega og Handkastinu ekki til framdráttar.
Að nafngreina leikmenn og bera á þá ósannaðar ásakanir er mikið ábyrgðarmál. Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hvetur fjölmiðla til að sýna aðgát og ábyrgð í umfjöllun sinni, sérstaklega þegar um unga íþróttamenn er að ræða.
Nú er mikilvægt að skapa liðinu og leikmönnum þess starfsfrið þannig að hægt sé að beina allri orku að áframhaldandi uppbyggingu og jákvæðu starfi innan félagsins.
Virðingarfyllst,
Kristinn Jóhannsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR“



