- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einstakur heimsmeistari lætur staðar numið

- Auglýsing -

Nikolaj Øris, leikmaður Bjerringbro-Silkeborg til 22 ára, hefur tilkynnt að hann leggi skóna á hilluna að loknu yfirstandandi tímabili. Øris er fertugur og varð tvívegis heimsmeistari með danska landsliðinu.

Hægri skyttan er einstök að því að leyti að hafa verið samningsbundin Bjerringbro-Silkeborg allan sinn feril, en fyrsta leikinn fyrir liðið lék hann árið 2004.


Øris er fæddur og uppalinn í Bjerringbro, líður hvergi betur og lék með liðinu alla tíð fyrir utan einungis eitt tímabil að láni hjá Lemvig Håndbold, tímabilið 2008/2009.

Hann varð danskur meistari einu sinni á ferlinum, vorið 2016 með Bjerringbro-Silkeborg, ásamt því að vera markakóngur dönsku úrvalsdeildarinnar árin 2015 og 2018.

Því telst Øris til sannkallaðrar goðsagnar á austur Jótlandi. Hann varð heimsmeistari með Dönum árin 2021 og 2019.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -