- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valur sópaði Fram í snemmbúið sumarfrí

- Auglýsing -

Valur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaeinvígi Olísdeildar kvenna með því að leggja Fram að velli, 31:27, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum í N1 höllinni á Hlíðarenda. Valur vann einvígið 3:0 og sópar þar með Fram í sumarfrí.

Í úrslitaeinvíginu mun Valur, sem er þegar búinn að tryggja sér bikar- og deildarmeistaratitil, mæta annað hvort ÍBV eða Haukum. Staðan í því einvígi er 2:1, ÍBV í vil.

Sandra og Embla fóru með himinskautum í tvíframlengdum sigri ÍBV


Valur hefur tekið þátt í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn á hverju ári frá og með 2018, að undanskildu árinu 2020 þegar engin úrslitakeppni fór fram vegna kórónuveirufaraldursins.

Í kvöld voru Valskonur við stjórn allan tímann. Staðan í hálfleik var 15:10 og hóf liðið síðari hálfleikinn á því að komast í 17:10.

Eftir það var eftirleikurinn auðveldur. Þrátt fyrir að Valur hafi aðeins gefið eftir undir lokin kom það ekki að sök.

Valur – Fram 31:27 (15:10).

Mörk Vals: Lilja Ágústsdóttir 5/2, Lovísa Thompson 5, Elísa Elíasdóttir 5, Guðrún Hekla Traustadóttir 4/1, Arna Karitas Eiríksdóttir 3, Auður Ester Gestsdóttir 2, Sara Lind Fróðadóttir 2, Laufey Helga Óskarsdóttir 2, Ágústa Rún Jónasdóttir 1, Anna Margrét Alfreðsdóttir 1, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 7/2, 25,9% – Elísabet Millý Elíasardóttir 1, 12,5%.

Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 9/1, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 3/1, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 3, Ásdís Guðmundsdóttir 3/1, Íris Anna Gísladóttir 3, Þóra Lind Guðmundsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 1, Sara Rún Gísladóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 12/2, 36,4% – Arna Sif Jónsdóttir 9/2, 47,4%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -