- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sandra og Embla fóru með himinskautum í tvíframlengdum sigri ÍBV

- Auglýsing -

Sandra Erlingsdóttir átti magnaðan leik fyrir ÍBV og Embla Steindórsdóttir fyrir Hauka þegar fyrrnefnda liðið hafði betur, 38:37, eftir tvíframlengdan þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildarinnar í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBV er því 2:1 yfir í einvíginu og þarf einn sigur til viðbótar til þess að komast í úrslitaeinvígið.

Sá leikur fer fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum næstkomandi laugardag. Hefst leikurinn klukkan 15.


Sandra skoraði 14 mörk og gaf fimm stoðsendingar fyrir ÍBV og Embla skoraði 13 mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir Hauka.

Í kvöld var allt í járnum og jafnaði Kristrún Ósk Hlynsdóttir metin fyrir ÍBV á síðustu sekúndu venjulegs leiktíma. Þá var staðan 29:29 og enn var jafnt á öllum tölum, 34:34, að lokinni fyrri framlengingu.

Undir lok fyrri framlengingarinnar, þegar aðeins 15 sekúndur voru eftir, voru Haukar í sókn en Jóhanna Margrét Sigurðardóttir kastaði boltanum út af. Skot Birnu Berg Haraldsdóttur á lokasekúndunni fór svo yfir markið.


Í síðari framlengingunni var sem fyrr allt í járnum og staðan 36:36 að loknum fyrri hálfleik hennar. Loks var það ÍBV sem náði að vinna eins marks sigur eftir algjöran maraþonleik.

ÍBV – Haukar 38:37 (29:29).

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 14/5, Birna Berg Haraldsdóttir 9, Ásdís Halla Hjarðar 4, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Britney Cots 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Birna Dís Sigurðardóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Amalie Frøland 12, 28,6% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 5/1, 41,7%.

Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 13/4, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 6, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 4, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Sara Odden 2, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Aníta Eik Jónsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 13, 27,7% – Elísa Helga Sigurðardóttir 3/1, 42,9%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -