- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tólf ára þjálfaratíð Dujshebaev hjá Kielce lokið

- Auglýsing -

Talant Dujshebaev, Spánverjinn sem fæddist í Kirgistan, hefur látið af störfum hjá pólska liðinu Industria Kielce eftir tólf ára starf sem þjálfari liðsins. Samningur hans við félagið átti að renna út næsta sumar.

Dujshebaev tók við sem þjálfari franska karlalandsliðsins í febrúar og var útlit fyrir að hann myndi sinna báðum störfum þar til samningur hans væri á enda sumarið 2027.


Kielce tilkynnti hins vegar í dag að samstarfinu, sem hófst árið 2014, væri lokið. Á samfélagsmiðlum var Dujshebaev þakkað innilega fyrir sín störf enda hafi hann skrifað söguna með félaginu.

Stærsta stundin var án vafa þegar Kielce vann Meistaradeild Evrópu undir stjórn Dujshebaev árið 2016 en einnig varð liðið pólskur meistari níu sinnum og bikarmeistari sjö sinnum með hann við stjórnvölinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -