Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs fór fram á miðvikudagskvöld. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var valinn besti leikmaður karlaliðs KA og Sólveig Lára Kristjánsdóttir var kjörin besti leikmaður kvennaliðs KA/Þórs.
Bjarni Ófeigur var næstmarkahæsti leikmaður Olísdeildarinnar og sá stoðsendingahæsti. Sólveig Lára lék þá frábærlega í vörn KA/Þórs auk þess að gera sig gildandi í sóknarleiknum í Olísdeildinni.
KA hafnaði í fimmta sæti Olísdeildar karla, komst í undanúrslit úrslitakeppninnar og í undanúrslit bikarkeppninnar. KA/Þór hafnaði í sjötta sæti Olísdeildar kvenna sem nýliði, komst í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og fór einnig í undanúrslit bikarkeppninnar.
Handboltaparið heiðrað
Á lokahófinu voru fleiri verðlaun veitt og handboltaparið Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir kvödd með virktum. Þau flytja suður á höfuðborgarsvæðið í sumar eftir að hafa leikið með KA og KA/Þór um árabil.

„Unnur sem er uppalin hjá KA/Þór lék í heildina 150 leiki fyrir liðið og varð bikarmeistari er hún sneri aftur heim veturinn 2021-2022.
Einar Rafn er kannski ekki uppalinn fyrir norðan en hefur alltaf haft gríðarlega sterkar taugar til KA og lék í heildina 116 leiki fyrir félagið en hann varð meðal annars tvívegis markakóngur Olísdeildarinnar í gula og bláa búningnum.
Við þökkum þeim heiðurshjónum kærlega fyrir frábæra samveru undanfarin ár og bjóðum þau ávallt velkomin aftur norður,“ sagði meðal annars í umfjöllun um verðlaunahafa á heimasíðu KA.


