- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Íslendingarnir fóru á kostum í Noregi

Flestir þeirra íslensku leikmanna sem voru í eldlínunni í átta liða úrslitum norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla í kvöld létu afskaplega vel að sér kveða. Kolstad og Elverum tryggðu sér sæti í undanúrslitum en Drammen er á leið í...

Pólsk goðsögn er fallin frá

Pólski þjálfarinn Stanislaw Majorek er látinn, 88 ára að aldri. Majorek var þjálfari pólska karlalandsliðsins þegar liðið vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Montréal í Kanada árið 1976. Frá þessu segir í pólskum fjölmiðlum, þar sem kemur fram að hann...

Glímdu við meiðsli undir lok tímabils

Hvorki Ísak Gústafsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson léku ekki með TMS Ringsted í síðustu leikjum neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili vegna meiðsla sem þeir voru að glíma við. Í samtali við Handkastið greindi Ísak frá því að hann...

Gidsel í aðalhlutverki í sjónvarpsþætti

Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims undanfarin þrjú ár, verður í forgrunni í fyrsta þætti nýrrar syrpu heimildaþáttaraðarinnar Leyndardómar fortíðarinnar sem danska ríkisútvarpið hefur veg og vanda af. Í þáttunum er kafað djúpt í fjölskyldusögur þekktra Dana og verður röðin komin...
- Auglýsing-

Íslendingabaninn hvergi nærri hættur

Ungverski markvörðurinn Roland Mikler hefur skrifað undir nýjan samning við ungverska félagið OTP Bank-Pick Szeged sem gildir í eitt ár. Mikler er 41 árs og verður orðinn 42 ára þegar samningurinn er á enda næsta sumar. Hann er Íslendingum vel...

Lærisveinar Arnórs Þórs gætu farið í Evrópukeppni

Karlalið Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, kom flestum á óvart þegar liðið lagði SC Magdeburg í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar og vann í kjölfarið til silfurverðlauna eftir tap fyrir Füchse Berlín í úrslitaleiknum. Svo gæti farið að silfrið í...

Engin nöfn leikmanna eða styrktaraðila á treyjunni

Danska félagið Aalborg Håndbold hefur í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, World Food Programme (WFP), ákveðið að spila í sérstökum keppnistreyjum í leik sínum gegn Fredericia HK í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar laugardaginn 2. maí. Leikmenn Aalborg munu ekki bera...

Fyrrverandi þjálfari Þórs entist ekki lengi

Norður-Makedóninn Stevce Alusosvski er ekki lengur þjálfari ríkjandi meistara RK Eurofarm Pelister. Alusovski, sem þjálfaði karlalið Þórs á Akureyri í rúmt ár frá 2021 til 2022, var einungis ráðinn þjálfari Eurofarm Pelister í janúar síðastliðnum og entist því aðeins...
- Auglýsing-

Gunnar Hrafn til Víkings

Handknattleiksdeild Víkings úr Reykjavík hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hann kemur til liðsins frá Gróttu. Víkingur vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í Olísdeildinni á því...

Færeyingurinn yfirgefur Aftureldingu

Færeyingurinn Sveinur Olafsson leikur ekki áfram með Aftureldingu á næsta tímabili. Samningur hans er á enda runninn og hyggst Sveinur flytja til Danmerkur og sameina þar handboltaiðkun og nám. Staðfesti hann tíðindin í samtali við Handkastið. Sveinur er 23 ára...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -