- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gunnar Hrafn til Víkings

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Víkings úr Reykjavík hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hann kemur til liðsins frá Gróttu. Víkingur vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í Olísdeildinni á því næsta.

Gunnar Hrafn er 24 ára vinstri skytta og leikstjórnandi sem býr yfir reynslu úr Olísdeildinni með Gróttu.


„Gunnar er fjölhæfur og tæknilega sterkur leikmaður sem getur bæði leyst skyttustöðuna og stýrt leik liðsins. Hann kemur til Víkings frá Gróttu þar sem hann hefur áður leikið í Olís deildinni og aflað sér dýrmætrar reynslu á hæsta stigi íslensks handbolta.

Víkingur býður Gunnar Hrafn hjartanlega velkominn til félagsins,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Víkings.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -