Danska félagið Aalborg Håndbold hefur í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, World Food Programme (WFP), ákveðið að spila í sérstökum keppnistreyjum í leik sínum gegn Fredericia HK í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar laugardaginn 2. maí.
Leikmenn Aalborg munu ekki bera eigin eftirnöfn aftan á treyjunum eins og hefð er fyrir og engin merki styrktaraðila verða heldur sjáanleg á keppnistreyjunum.
Þess í stað verða eftirnöfn frá þeim 18 þjóðum sem búa við hvað mesta hungursneyð aftan á treyjum þeirra sem skipa leikmannahóp Aalborg á leikdegi.
„Nafn sem er venjulega aldrei prentað aftan á keppnistreyju. Aldrei kallað í keppnishöll. Aldrei fagnað,“ segir í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Þar kemur fram að framtakið nefnist „Í nafni hungurs“ og komi til vegna 15 ára afmælis Aalborg Håndbold.

Treyjurnar boðnar upp
WFP eru stærstu mannúðarsamtök heims og færa 120 milljón manns í 100 löndum mat ár hvert. Allir styrktaraðilar félagsins hafa samþykkt að fjarlægja merki sín í tilefni þessa framtaks.
Að leik loknum munu leikmenn Aalborg árita treyjurnar og svo verður hægt að kaupa þær á uppboði sem verður strax eftir leikinn í keppnishöll félagsins, Sparekassen Arena í Álaborg. Allur ágóði af uppboðinu rennur rakleitt til WFP.



