- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Alfreð hæstánægður með bikarhelgina

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, var viðstaddur úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar þar sem Füchse Berlín fór með sigur af hólmi gegn lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarrsonar í Bergischer HC í úrslitaleiknum í Lanxess Arena í Köln í gær. Alfreð fylgdist eins og...

Gat ekki staðið úti í mínus sex gráðum í desember

Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum. Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og...

Leikmenn SC Magdeburg rændir

Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum. Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að...

Varnarmaðurinn öflugi áfram í Úlfarsárdalnum

Sóldís Rós Ragnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram. Gildir nýi samningurinn til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029. Sóldís Rós er tvítug skytta sem spilar þó mestmegnis í vörninni, þar sem hún er í lykilhlutverki hjá...
- Auglýsing-

Greindist með hvítblæði

Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020. Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að...

Standa þétt við bakið á Gottfridsson

Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða. Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi...

Hlaut höfuðhögg í upphitun og fór grátandi af velli

Althea Reinhardt, markvörður Odense Håndbold og danska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá skot í höfuðið í upphitun fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. TV 2 Sport greinir frá því að Reinhardt hafi gengið...

Önnur færeysk unglingalandsliðskona til KA/Þórs

KA/Þór hefur samið við færeysku unglingalandsliðskonuna Joan Rúnadóttur Johannesen um að leika með liðinu á næsta tímabili. Joan kemur frá Kyndil í heimalandinu. Joan er 19 ára gömul og leikur í hægra horni. Varð hún meðal annars færeyskur meistari og...
- Auglýsing-

Myndskeið: Hefur svona mark verið skorað áður?

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum. „Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn. Í athugasemdakerfinu voru nokkrir...

Áfram framlengja Framarar

Eiður Rafn Valsson, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Hann er uppalinn Framari og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili. Eiður Rafn er tvítugur hægri hornamaður sem hefur átt...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -