Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum.
„Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn.
Í athugasemdakerfinu voru nokkrir sem bentu á að markið væri ólöglegt því ekki megi nota liðsfélaga sinn til þess að komast hærra í loftið.
Í myndskeiðinu hér fyrir ofan sést nefnilega hvar einn leikmaður þykist reima skóna sína og liðsfélagi hans stígur svo á bak hans og þrumar boltanum í þverslána og í netið. Sjón er vissulega sögu ríkari.
Eftir því sem næst verður komist skoraði Gunnar Einarsson keimlíkt mark í leik með FH þegar hann steig á bakið á samherja sínum Geir Hallsteinssyni og þrumaði boltanum yfir vörn andstæðinganna og í netið fyrir um hálfri öld síðan.


