Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020.
Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að Sarac dvelji um þessar mundir á sjúkrahúsi í Zagreb.
Ferillinn hefur ekki verið dans á rósum hjá hinum 28 ára gamla Sarac, sem er hávaxin vinstri skytta. Árið 2019 smitaðist hann af einkirningasótt og var frá í átta mánuði vegna þess.
Í fyrsta leik sínum eftir endurkomuna sleit hann aftara krossband í hægra hné. Í apríl 2021 sleit hann svo fremra krossband í sama hné auk þess að skadda liðband í fæti og verða fyrir brjóskskemmdum.
Ásamt því að spila með Tatabánya hefur Sarac verið á mála hjá Frisch Auf! Göppingen í Þýskalandi, RK Celje í Slóveníu og HRK Izvidac í Bosníu og Hersegóvínu, þar sem hann er fæddur.



