Sóldís Rós Ragnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram. Gildir nýi samningurinn til næstu þriggja ára, til sumarsins 2029.
Sóldís Rós er tvítug skytta sem spilar þó mestmegnis í vörninni, þar sem hún er í lykilhlutverki hjá Fram eftir að hafa jafnt og þétt fengið stærra hlutverk hjá meistaraflokki á undanförnum árum.
„Sóldís er ekki bara varnarmaður, því hún er skothörð, öflug skytta í þokkabót og [við hlökkum] mikið til að fylgjast með áframhaldandi þróun Sóldísar sem leikmanns.
Það er mikið gleðiefni að við séum að halda í okkar stelpur, sem hafa alist upp hjá okkur og eru nú komnar upp í meistaraflokk. Til hamingju með samninginn FRAM og Sóldís Rós,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.



