- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram framlengja Framarar

- Auglýsing -

Eiður Rafn Valsson, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Hann er uppalinn Framari og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili.

Eiður Rafn er tvítugur hægri hornamaður sem hefur átt stórt hlutverk í liði Fram undanfarin ár. Handknattleiksdeild Fram hefur verið einkar iðin við að framlengja samninga leikmanna kvenna- og karlaliða sinna að undanförnu.


„Eiður hefur verið að bæta sig jafnt og þétt frá því að hann kom upp í meistaraflokk og átti stóran þátt í velgengni tímabilsins 24/25.

Við væntum mikils af Eiði á komandi tímabilum þar sem að hann er gífurlega samviskusamur og duglegur. Til hamingju Eiður og FRAM með framlenginguna!“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -