- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Glímdu við meiðsli undir lok tímabils

- Auglýsing -

Hvorki Ísak Gústafsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson léku ekki með TMS Ringsted í síðustu leikjum neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili vegna meiðsla sem þeir voru að glíma við.

Í samtali við Handkastið greindi Ísak frá því að hann hafi verið að glíma við meiðsli í báðum hásinum og að Guðmundur Bragi hafi snúið sig á ökkla í leik með Ringsted.


Ringsted tókst að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu áður en keppni í neðri hlutanum lauk og skýrði Ísak frá því að vegna þess hafi verið ákveðið að taka enga áhættu og leyfa þeim báðum að hvíla og jafna sig í síðustu tveimur leikjum tímabilsins.

Ísak er samningsbundinn Ringsted til sumarsins 2027 en samningur Guðmundar Braga rennur út í sumar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -