- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Færeyingurinn yfirgefur Aftureldingu

- Auglýsing -

Færeyingurinn Sveinur Olafsson leikur ekki áfram með Aftureldingu á næsta tímabili. Samningur hans er á enda runninn og hyggst Sveinur flytja til Danmerkur og sameina þar handboltaiðkun og nám.

Staðfesti hann tíðindin í samtali við Handkastið. Sveinur er 23 ára leikstjórnandi og vinstri skytta sem skoraði 23 mörk í 18 leikjum fyrir Aftureldingu í Olísdeildinni á tímabilinu.


Hann gekk til liðs við Aftureldingu sumarið 2024, spilaði lítið á sínu fyrra tímabili en lék öllu meira á nýafstöðnu tímabili þar sem liðið féll úr leik í oddaleik gegn Haukum í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar.

Sveinur varð meðal annars færeyskur meistari með H71 og var valinn besti leikmaður tímabilsins 2023/2024 áður en hann flutti til Íslands.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -