Norður-Makedóninn Stevce Alusosvski er ekki lengur þjálfari ríkjandi meistara RK Eurofarm Pelister. Alusovski, sem þjálfaði karlalið Þórs á Akureyri í rúmt ár frá 2021 til 2022, var einungis ráðinn þjálfari Eurofarm Pelister í janúar síðastliðnum og entist því aðeins í rúma þrjá mánuði í starfinu.
Umboðsmaðurinn virti Hen Livgot segir frá því á X-aðgangi sínum að Alusovski sé ekki lengur þjálfari Eurofarm Pelister þó enn séu fimm umferðir óleiknar í efri hluta efstu deildar Norður-Makedóníu.
Ekki kemur fram hvort Alusovski hafi verið rekinn eða ákveðið sjálfur að segja starfi sínu lausu. Hvort heldur sem er sé hann ekki lengur í brúnni.
RK Vardar 1961 er á toppi deildarinnar með 52 stig, átta stigum meira en Eurofarm Pelister í öðru sæti og því ólíklegt að síðarnefnda liðið verji titilinn í ár né klófesti sæti í Meistaradeild Evrópu eins og undanfarin ár.



