- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

„Þetta eru allt kjúllar“

„Mér líður ótrúlega vel. Þetta var frábært,“ sagði Lovísa Thompson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar, í samtali við Handboltapassann eftir að lið hennar Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íþróttamiðstöð Vestmanneyja í kvöld. Valur vann einvígið 3:1 eftir að hafa óvænt tapað stórt...

Líður hörmulega en er einnig stolt

„Mér líður hörmulega. Ég er ótrúlega svekkt,“ sagði Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, í samtali við Handboltapassann eftir fjögurra marka tap fyrir Val í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum í kvöld. Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn og ÍBV...

Sýni þeim hvernig á að djamma eins og alvöru Eyjamaður

Elísa Elíasdóttir, Eyjakonan í liði Vals, var að vonum hæstánægð eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á heimaslóðum hennar í Vestmannaeyjum í kvöld. „Tilfinningin er ótrúlega góð. Eins og heyrist er ég gjörsamlega búin að missa röddina. En ég er...

Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð

Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna með því að leggja ÍBV að velli, 30:26, í fjórða leik liðanna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Valur vann einvígið þar með 3:1. Valur er Íslandsmeistari í 21. sinn í kvennaflokki. Valskonur fögnuðu...
- Auglýsing-

Þorvaldur Örn heldur til Póllands

Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður Íslands- og deildarmeistara Vals, hefur ákveðið að þekkjast samningstilboð GE Wybrzeże Gdansk í Póllandi og gengur til liðs við félagið í sumar. Samningur Þorvalds Arnar við Val rennur út nú í sumar en Wybrzeże Gdansk bauð...

Sara Kristín tekur áfram slaginn með Fjölni

Sara Kristín Pedersen hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fjölni og leikur því áfram með liðinu í Grill 66 deildinni á næsta tímabili. Sara Kristín er aðeins 18 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með...

Hvað gerir Andersson?

Framtíð dönsku vinstri skyttunnar Lasse Andersson, leikmanns Füchse Berlín, er í mikilli óvissu nú þegar ljóst er orðið að danska liðið HØJ Elite er fallið niður í B-deild eftir tap í umspili fyrir KIF Kolding um helgina. Andersson var búinn...

Róbert Örn rær á önnur mið

Róbert Örn Karlsson, markvörður HK, verður ekki áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, greindi frá þessu í samtali við Handkastið. Róbert Örn, sem er 28 ára gamall, hafði leikið með HK frá árinu 2021,...
- Auglýsing-

Agnar Smári leggur skóna á hilluna

Agnar Smári Jónsson, leikmaður Vals, hefur tilkynnt að hann sé hættur handknattleiksiðkun. Tilkynnti hann um ákvörðun sína á Instagram í morgun. „Ekki hægt að biðja um betri endi TAKK fyrir mig handbolti *pistill í bígerð,“ skrifaði Agnar Smári undir ljósmynd...

Bjarki Már drjúgur sem fyrr – Janus Daði fjarverandi

Karlalið One Veszprém og Pick Szeged unnu auðvelda útisigra í efstu deild Ungverjalands í gær. Bjarki Már Elísson var samur við sig í markaskorun í sigri Veszprém en Janus Daði Smárason var fjarri góðu gamni í sigri Szeged. Bjarki Már...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -