- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Líður hörmulega en er einnig stolt

- Auglýsing -

„Mér líður hörmulega. Ég er ótrúlega svekkt,“ sagði Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, í samtali við Handboltapassann eftir fjögurra marka tap fyrir Val í fjórða leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum í kvöld. Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn og ÍBV hafnar í öðru sæti.

Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð


Sandra, sem skoraði tólf mörk og gaf fimm stoðsendingar í kvöld, kvaðst þó stolt af sínu liði. „Já, að sjálfsögðu verður maður stoltur með frábæran vetur. Þetta er búið að vera flott hjá okkur en eins og í dag veit ég að við áttum roð í Val.

Þetta datt ekki með okkur í dag. Mér fannst koma ákveðin þreytumerki í okkur í lok síðari hálfleiks. Við byrjuðum seinni hálfleik náttúrlega mjög illa og þá er erfitt að fara að elta Val þarna í lokin,“ útskýrði hún.

Mættu kannski 15 manns

Gífurlega vel var mætt í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld og stuðningurinn eftir því. Sagði Sandra það vera forréttindi.


„Já, að sjálfsögðu. Við töluðum um það að það er alls ekki á hverjum degi sem við spilum fyrir framan svona marga og maður reyndi að njóta þess eins vel og maður gat. Þetta er alveg einstakt.

Maður er búinn að vera í sumum leikjum í vetur og það mæta kannski 15 manns. Þannig að þetta er aðeins öðruvísi og við erum ótrúlega þakklát fyrir allan stuðninginn sem við fengum.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -