- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð

- Auglýsing -

Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna með því að leggja ÍBV að velli, 30:26, í fjórða leik liðanna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Valur vann einvígið þar með 3:1.

Valur er Íslandsmeistari í 21. sinn í kvennaflokki. Valskonur fögnuðu einnig Íslandsmeistaratitlinum við upphaf yfirstandandi sigurgöngu í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum árið 2023.


Valur byrjaði leikinn betur og komst þremur mörkum yfir, 8:5, snemma leiks. ÍBV vann sig betur inn í leikinn og sneri taflinu við í 10:12. ÍBV var einu marki yfir, 15:16, í hálfleik.

Illa tókst fyrir Eyjakonur að láta kné fylgja kviði í upphafi síðari hálfleiks þar sem Valur hóf hann á því að skora fyrstu fimm mörkin í hálfleiknum. Staðan þá orðin 20:16 og Valskonur með góð tök á leiknum.

Ekki stóð til að leggja árar í bát hjá heimakonum í ÍBV og minnkuðu þær muninn niður í aðeins eitt mark, 24:23, þegar tæplega átta mínútur lifðu leiks.


Erfitt reyndist hins vegar fyrir ÍBV að komast yfir þann hjalla og ná að jafna metin. Valur gekk þá á lagið, skoraði þrjú mörk í röð og staðan orðin 27:23 þegar skammt var eftir. Hafði Valur að lokum fjögurra marka sigur.

Mörk ÍBV: Sandra 12/5, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Amelía Dís Árnadóttir 3, Britney Cots 2, Birna María Unnarsdóttir 2.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 16, 35,6% varsla.

Mörk Vals: Ásdís Þóra Ágústsdóttir 6/5, Lovísa Thompson 6, Elísa Elíasdóttir 5, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 3, Laufey Helga Óskarsdóttir 3, Sara Lind Fróðadóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Mariam Eradze 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 11, 31,4% varsla – Elísabet Millý Elíasardóttir 0.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -