Sara Kristín Pedersen hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fjölni og leikur því áfram með liðinu í Grill 66 deildinni á næsta tímabili.
Sara Kristín er aðeins 18 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Fjölnis undanfarin fjögur tímabil og er búin að spila yfir 70 keppnisleiki fyrir liðið.
„Ég er mjög spennt að halda áfram með félaginu og hlakka til að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera saman,“ sagði hún í samtali á heimasíðu Fjölnis.
„Sara hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og framlag hennar innan sem utan vallar fer ekki fram hjá neinum. Á síðustu árum hefur hún verið valin efnilegasti leikmaður meistaraflokksins og á síðasta lokahófi var hún einnig valin besti liðsfélaginn,“ sagði meðal annars um Söru Kristínu á síðunni.



