- Auglýsing -
Róbert Örn Karlsson, markvörður HK, verður ekki áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, greindi frá þessu í samtali við Handkastið.
Róbert Örn, sem er 28 ára gamall, hafði leikið með HK frá árinu 2021, fyrsta tímabilið að láni frá Fram en gekk svo alfarið í raðir félagsins sumarið 2022.
Hann lék alla 22 leiki HK í Olísdeildinni á síðasta tímabili og það þrátt fyrir að liðið hafi verið með alls fjóra markverði á sínum snærum.
Brynjar Vignir Sigurjónsson, Jovan Kukobat og Patrekur Guðni Þorbergsson eru nefnilega allir á mála hjá HK. Nú rær Róbert Örn á önnur mið þó ekki liggi enn fyrir hvaða.
- Auglýsing -



