Agnar Smári Jónsson, leikmaður Vals, hefur tilkynnt að hann sé hættur handknattleiksiðkun. Tilkynnti hann um ákvörðun sína á Instagram í morgun.
„Ekki hægt að biðja um betri endi TAKK fyrir mig handbolti *pistill í bígerð,“ skrifaði Agnar Smári undir ljósmynd sem hann birti á samfélagsmiðlinum.
Þar má sjá Agnar Smára fagna Íslandsmeistaratiltinum með Val, sem liðið tryggði sér með dramatískum hætti í oddaleik síðastliðið fimmtudagskvöld.
Agnar Smári er 32 ára örvhent skytta sem ólst upp hjá Val en lék einnig lengi vel með ÍBV hér á landi. Þá lék Agnar Smári um skeið með Mors-Thy í Danmörku.
Á ferlinum var hann einkar sigursæll, varð margsinnis Íslands- og bikarmeistari með bæði Val og ÍBV og vann Evrópubikarinn með Val vorið 2024.
Agnar Smári Jónsson tryggði ÍBV Íslandsmeistaratitilinn vorið 2014 er hann skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu í 29:28 sigri í odddaleik í troðfullu íþróttahúsinu á Ásvöllum þar sem hver fermetri utan vallar var nýttur fyrir áhorfendur.



