Karlalið One Veszprém og Pick Szeged unnu auðvelda útisigra í efstu deild Ungverjalands í gær. Bjarki Már Elísson var samur við sig í markaskorun í sigri Veszprém en Janus Daði Smárason var fjarri góðu gamni í sigri Szeged.
Bjarki Már skoraði fimm mörk fyrir Veszprém, þar af tvö úr vítaköstum, í 44:26 sigri á Györ. Var hann næstmarkahæstur í leiknum. Szeged lagði Budakalász 44:32.
Á heimasíðu Szeged kemur ekki fram hvers vegna Janus Daði lék ekki með liðinu í gær en mikið hefur mætt á honum að undanförnu vegna skakkafalla og brotthvarfs Jim Gottfridsson.
Veszprém er með fullt hús stiga á toppi ungversku deildarinnar þegar ein umferð er óleikin. Szeged er í öðru sæti og mætast þessi lið, einu sinni sem áður, í úrslitaeinvígi um ungverska meistaratitilinn. Veszprém er þar ríkjandi meistari.


