- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ótrúlegur viðsnúningur er Dijon vann Evrópudeildina

Franska liðið Dijon tryggði sér í gær sigur í Evrópudeild kvenna með því að leggja þýska liðið Thüringer að velli, 29:25, í úrslitaleik á heimavelli sínum Palais des Sports Jean-Michel Geoffroy í Dijon. Thüringer virtist eiga sigurinn vísan að...

Styrkleikaflokkarnir endanlega ljósir fyrir HM – Ísland í efsta og Færeyjar í öðrum

Nú þegar 30 af 32 þjóðum hafa tryggt sér farseðilinn á HM 2027 í handknattleik karla í Þýskalandi er ljóst í hvaða styrkleikaflokkum þjóðirnar verða þegar dregið verður í riðla í München miðvikudaginn 10. júní. Þegar var ljóst að Ísland...

Barnalán í Garðabænum

Natasja Hammer, færeyska landsliðskonan í liði Stjörnunnar, er barnshafandi. Hún bætist þar með í hóp liðsfélaga síns Söru Katrínar Gunnarsdóttur sem ber einnig barn undir belti. Handkastið greinir frá gleðitíðindunum af Hammer, sem þýða að hún missir að minnsta kosti...

Áfram semja meistararnir við efnilega leikmenn

Handknattleiksdeild Vals hefur samið við þær Guðrúnu Ástu Magnúsdóttur og Evu Steinsen Jónsdóttur um að leika áfram með liðinu. Báðar eru þær á 18. aldursári og komu við sögu hjá meistaraflokki Vals á tímabilinu þegar liðið vann fjórfalt auk...
- Auglýsing-

Gísli Þorgeir getur slegið met í Meistaradeildinni

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður SC Magdeburg og íslenska landsliðsins, stendur frammi fyrir því að geta slegið eftirsóknarvert met í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur tvívegs unnið keppnina með Magdeburg og í bæði skiptin verið valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar. Raunar eru það...

Var frá í átta mánuði vegna veirusýkingar

Erfitt tímabil er senn að baki hjá Theu Blomst, fyrirliða IK Sävehof, sem sneri nýverið aftur á völlinn eftir átta mánaða fjarveru. Skæð veirusýking olli fjarverunni löngu. „Þetta var veira frá helvíti,“ sagði Blomst í samtali við Aftonbladet. Upphaflega var...

Lokahóf: Valgerður Elín og Ísak Óli best hjá Víkingi

Lokahóf meistaraflokka Víkings Reykjavíkur í handknattleik fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí í veislusalnum í Virkinu í Safamýri þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu farsælu tímabili. Valgerður Elín Snorradóttir var valin besti leikmaður kvennaliðsins og Ísak Óli...

Arnar landsliðsþjálfari: Ömurleg framkoma stuðningssveitar ÍBV

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er ekki á eitt sáttur við framkomu stuðningsmannasveitar ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, og Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, urðu fyrir fordómum er lið þeirra komu í heimsókn í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja...
- Auglýsing-

Ísland mætir Egyptalandi öðru sinni í dag

Íslenska karlalandsliðið mætir því egypska í öðrum vináttuleik liðanna í Kaíró í Egyptalandi klukkan 16 í dag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Liðin mættust einnig á miðvikudag þar sem Ísland vann eins marks sigur, 31:30, eftir...

Ágúst til liðs við FH

Ágúst Guðmundsson er genginn til liðs við FH frá HK. Skrifar hann undir þriggja ára samning við FH, sem gildir til sumarsins 2029. Ágúst er tvítug hægri skytta sem hefur verið í stóru hlutverki hjá uppeldisfélagi sínu HK undanfarin tímabil...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -