- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Barnalán í Garðabænum

- Auglýsing -

Natasja Hammer, færeyska landsliðskonan í liði Stjörnunnar, er barnshafandi. Hún bætist þar með í hóp liðsfélaga síns Söru Katrínar Gunnarsdóttur sem ber einnig barn undir belti.

Handkastið greinir frá gleðitíðindunum af Hammer, sem þýða að hún missir að minnsta kosti af upphafi næsta tímabils og óvíst er hvort hún geti tekið þátt með Færeyjum á EM 2026 í lok ársins.


Hammer var langsamlega markahæsti leikmaður Stjörnunnar á nýafstöðnu tímabili með  173 mörk í 28 leikjum í Olísdeildinni og umspilinu um að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu.

Stjörnunni tókst það með því að vinna Gróttu 3:2 í úrslitaeinvíginu en síðar varð það ljóst að Grótta og Víkingur Reykjavík fara einnig upp í Olísdeildina eftir að ályktun á ársþingi HSÍ um að fjölga liðum úr átta í tíu var samþykkt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -