Erfitt tímabil er senn að baki hjá Theu Blomst, fyrirliða IK Sävehof, sem sneri nýverið aftur á völlinn eftir átta mánaða fjarveru. Skæð veirusýking olli fjarverunni löngu.
„Þetta var veira frá helvíti,“ sagði Blomst í samtali við Aftonbladet. Upphaflega var talið að hún hafi einungis fengið kvefpest. Svo reyndist ekki vera.
Blomst veiktist á æfingamóti í ágúst síðastliðnum og var þá með hita og hósta. Einkennin virtust ekkert ætla að dofna og eftir fjöldann allan af blóðprufum kom loks í ljós að hún hafi smitast af ónefndri veiru sem getur valdið alvarlegum veikindum.
Blomst var rúmliggjandi fyrstu mánuðina, sem tók ekki síður á andlega. Eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna meðfylgjandi andlegra kvilla í desember lá leiðin loks upp á við.
Eftir langa og stranga endurhæfingu sneri hún aftur á völlinn í lok apríl og getur tekið þátt í úrslitaeinvíginu sem er fram undan hjá Sävehof gegn Skara HF. Elín Klara Þorkelsdóttir er lykilmaður hjá Sävehof.



