Handknattleiksdeild Vals hefur samið við þær Guðrúnu Ástu Magnúsdóttur og Evu Steinsen Jónsdóttur um að leika áfram með liðinu. Báðar eru þær á 18. aldursári og komu við sögu hjá meistaraflokki Vals á tímabilinu þegar liðið vann fjórfalt auk þess að vera í stóru hlutverki hjá U-liðinu í Grill 66 deildinni.
Áður hafði handknattleiksdeild Vals nýverið tilkynnt að Laufey Helga Óskarsdóttir, sem er á 17. ári og var í stóru hlutverki hjá meistaraflokknum, hefði framlengt samning sinn.
Allar þrjár urðu Íslandsmeistarar með liðinu í 3. flokki kvenna í gær. Þær hafa sömuleiðis verið valdar í eða verið viðloðandi yngri landslið Íslands.
„Það er virkilega gaman að sjá hversu margir ungir leikmenn í Val eru að blómstra í okkar starfi og fá tækifæri með meistaraflokkum félagsins! Það er óhætt að segja að framtíðin sé björt að Hlíðarenda,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Vals.
Laufey Helga framlengir við meistarana



