- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Laufey Helga framlengir við meistarana

- Auglýsing -

Laufey Helga Óskarsdóttir, bráðefnilegur leikmaður fjórfaldra meistara Vals, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Hún er einungis 16 ára gömul en var í stóru hlutverki hjá Val á nýafstöðnu tímabili.

Laufey Helga er leikstjórnandi og vinstri skytta sem hefur einnig verið í stóru hlutverki hjá U17 ára landsliðinu. Verður hún 17 ára síðar á árinu.


Laufey Helga er dóttir þjálfarans Óskars Bjarna Óskarssonar og yngri systir Arnórs Snæs og Benedikts Gunnars. Því skyldi engan undra að handboltinn sé hennar ær og kýr.

„Laufey Helga er öflugur leikmaður með góðan leikskilning, mikinn metnað og jákvætt hugarfar sem mun styrkja hópinn okkar enn frekar.

Við erum afar ánægð með að Laufey Helga skrifi undir nýjan samning og hlökkum til að fylgjast með henni taka næstu skref í rauðu treyjunni,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Vals.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -