Franska liðið Dijon tryggði sér í gær sigur í Evrópudeild kvenna með því að leggja þýska liðið Thüringer að velli, 29:25, í úrslitaleik á heimavelli sínum Palais des Sports Jean-Michel Geoffroy í Dijon. Thüringer virtist eiga sigurinn vísan að loknum fyrri hálfleik enda níu mörkum yfir.
Staðan var þá 15:6 og þurfti mikið að fara úrskeiðis til þess að Thüringer glutraði niður forskoti sínu. Sem Þjóðverjarnir og gerðu.
Dijon skoraði 23 mörk gegn tíu í síðari hálfleik og unnu fjögurra marka sigur eftir hreint magnaðan viðsnúning. Eflaust hefur það ekki oft gerst að lið skori sex mörk í einum hálfleik og svo 23 í öðrum.
Er þetta í fyrsta sinn sem Dijon vinnur Evrópudeildina í kvennaflokki. Thüringer vann keppnina á síðasta ári og auðnaðist því ekki að vinna Evrópudeildina annað tímabilið í röð.


