- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Lokahóf: Valgerður Elín og Ísak Óli best hjá Víkingi

- Auglýsing -

Lokahóf meistaraflokka Víkings Reykjavíkur í handknattleik fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí í veislusalnum í Virkinu í Safamýri þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu farsælu tímabili. Valgerður Elín Snorradóttir var valin besti leikmaður kvennaliðsins og Ísak Óli Eggertsson besti leikmaður karlaliðsins.

Karlaliðið vann Grill 66 deildina og tryggði sér þannig sæti í Olísdeildinni. Kvennaliðið hafnaði svo í þriðja sæti í Grill 66 deildinni og féll úr leik í umspili en leikur einnig í Olísdeildinni á næsta tímabili þar sem ályktun um fjölgun liða úr átta í tíu var samþykkt á ársþingi HSÍ í síðustu viku.


Fráfarandi þjálfari meistaraflokks kvenna, Sebastian Alexandersson, fékk sérstakar þakkir fyrir unnin störf í þágu félagsins. Einnig var Jóhanni Reyni Gunnlaugssyni þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og fékk hann málverk að gjöf.

Verðlaun í kvennaflokki:

Besti leikmaður: Valgerður Elín Snorradóttir.
Efnilegasti leikmaður: Emilía Ína Burknadóttir.
Besti liðsfélaginn: Hafdís Shizuka Iura.

Verðlaun í karlaflokki:

Besti leikmaður: Ísak Óli Eggertsson.
Efnilegasti leikmaður: Daði Bergmann Gunnarsson.
Besti liðsfélaginn: Jóhann Reynir Gunnlaugsson.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -