- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ágúst til liðs við FH

- Auglýsing -

Ágúst Guðmundsson er genginn til liðs við FH frá HK. Skrifar hann undir þriggja ára samning við FH, sem gildir til sumarsins 2029.

Ágúst er tvítug hægri skytta sem hefur verið í stóru hlutverki hjá uppeldisfélagi sínu HK undanfarin tímabil auk þess að vera lykilmaður hjá öflugu U20 ára landsliði Íslands.


Hann skoraði 137 mörk fyrir HK í 26 leikjum í öllum keppnum á nýafstöðnu tímabili og er í lokahópi U20 ára landsliðsins fyrir EM í Rúmeníu, sem fer fram í júlí.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Ágúst til liðs við okkur. Hann er gríðarlega öflugur leikmaður sem nú þegar hefur gert sig gildandi í Olísdeildinni.

Hann er metnaðarfullur leikmaður sem stefnir hátt og hjá FH mun hann fá tækifæri og umgjörð til að halda áfram að bæta sig og ná sínum markmiðum,“ sagði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, í tilkynningu frá deildinni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -