Nú þegar 30 af 32 þjóðum hafa tryggt sér farseðilinn á HM 2027 í handknattleik karla í Þýskalandi er ljóst í hvaða styrkleikaflokkum þjóðirnar verða þegar dregið verður í riðla í München miðvikudaginn 10. júní.
Þegar var ljóst að Ísland yrði í efsta styrkleikaflokki og hefur liðinu verið raðað í H-riðil, sem verður leikinn í Magdeburg. Aðeins á eftir að ákveða hvaða tvær þjóðir fá boðssæti á mótið og fara þær sjálfkrafa í fjórða og neðsta styrkleikaflokk.
Á meðal þjóða sem verða í öðrum styrkleikaflokki eru frændur vorir í Færeyjum. Því er ekki loku fyrir það skotið að Ísland mæti Færeyjum í riðlakeppninni.
Styrkleikaflokkarnir eru sem hér segir:
Styrkleikaflokkur 1: Danmörk, Þýskaland, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland, Argentína.
Styrkleikaflokkur 2: Frakkland, Slóvenía, Noregur, Serbía, Spánn, Ítalía, Færeyjar, Norður-Makedónía.
Styrkleikaflokkur 3: Grikkland, Pólland, Brasilía, Barein, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Síle, Bandaríkin.
Styrkleikaflokkur 4: Katar, Kúveit, Japan, Alsír, Angóla, Úrúgvæ, boðssæti 1, boðssæti 2.



