- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Komnir með bakið upp við vegg

Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Kadetten Schaffhausen eru komnir með bakið upp á vegg í baráttunni um meistaratitilinn í Sviss. Í kvöld töpuðu þeir öðru sinni fyrir HC Kriens-Luzern í úrslitum. Að þessu sinni var munurinn á liðunum...

Tumi Steinn færir sig á milli félaga í Austurríki

Tumi Steinn Rúnarsson hefur samið við austurríska handknattleiksliðið HSG XeNTiS Lipizzanerheimat fyrir næsta keppnistímabil. Félagið greindi frá komu hins 26 ára gamla leikstjórnanda í dag. Tumi Steinn hefur undanfarin tvö ár leikið með Alpla Hard og á þeim tíma...

Kolstad vann úrslitakeppnina með stórsigri í Drammen

Kolstad gjörsigraði Drammen HK í síðari úrslitaleik liðanna í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í Drammenshallen í dag, 39:24. Kolstad vann þar með úrslitakeppnina og öðlast þar með rétt til þess að sækja um keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu...

Andri Þór framlengir við HK til tveggja ára

Andri Þór Helgason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, HK. Hann var einn mikilvægasti leikmaður Kópavogsliðsins á síðustu leiktíð og skoraði m.a. 92 mörk í 22 leikjum HK í Olísdeildinni auk sex marka í tveimur...
- Auglýsing-

Verður Aron ráðinn aðalþjálfari FH á morgun?

Handknattleiksdeild FH hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag. Efni er m.a. þjálfaramál meistaraflokks karla. Væntanlega verður tilkynnt um ráðningu Arons Pálmarssonar í starf aðalþjálfara FH-liðsins. Fregnir um að Aron taki við af Sigursteini Arndal hafa verið uppi síðan...

Ekkert verður af lokahófi vegna áhugaleysis

Áform Handknattleikssambands Íslands um að halda lokahóf næsta laugardagskvöld hafa lognast út af vegna áhugaleysis. Sambandið segir frá þessu í tilkynningu í dag. Stefnt er á að halda uppskeruhátíð í næstu viku, líkt og undanfarin ár, þar sem viðurkenningar...

Karlar – helstu félagaskipti 2026

Eins og undanfarin ár heldur handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskarla og...

EHF sektar Dag og Króata um milljónir fyrir reiðlestur og óviðkomandi fána

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur sektað Dag Sigurðsson landsliðsþjálfara Króatíu um 4.000 evrur, jafnvirði 580 þúsund kr, fyrir harða gagnrýni sína á EHF fyrir undanúrslitahelgi EM karla í lok janúar. Í úrskurði aganefndar EHF eru orð Dags sögð vera niðrandi...
- Auglýsing-

Molakaffi: Arnoldsen, Pedersen, Abelvik

Danski landsliðsmaðurinn Thomas Arnoldsen er í kapphlaupi við tímann að ná fyrsta úrslitaleik Aalborg Håndbold og Skanderborg á sunnudaginn. Arnoldsen meiddist á öxl í síðari undanúrslitaleiknum við Mors-Thy á dögunum.  Handknattleikskonan Christina Pedersen, sem lenti svo upp á kant við...

Einar Bragi markahæstur og IFK er í kjörstöðu

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad eru í kjörstöðu í kapphlaupinu við Malmö um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla. IFK vann þriðju viðureign liðanna í Kristianstad Arena í kvöld með fimm marka mun, 34:29, og hefur þar...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19472 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -