- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

EHF sektar Dag og Króata um milljónir fyrir reiðlestur og óviðkomandi fána

- Auglýsing -

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur sektað Dag Sigurðsson landsliðsþjálfara Króatíu um 4.000 evrur, jafnvirði 580 þúsund kr, fyrir harða gagnrýni sína á EHF fyrir undanúrslitahelgi EM karla í lok janúar. Í úrskurði aganefndar EHF eru orð Dags sögð vera niðrandi í garð EHF. Dagur líkti starfsemi og skipulagi EHF á EM við skyndibitakeðju.

„Þau eru eins og skyndibitastaður, þeim er alveg sama um gæðin, þau vilja bara selja. Eða reyndar, þau eru eins og viðburðarfyrirtæki sem pantar bara einhverja listamenn til að setja upp sýningu og flottan blaðamannafund,“ hafði Vísir eftir Degi á fyrrnefndum fundi.


Dagur og Króatar eru brjálaðir út í EHF

EHF svarar Degi: Svipað og á EM í Króatíu 2018 – öllum ljóst í fyrir hálfu ári

Helmingur sektar Dags, 2.000 evrur, er háður skilorði til tveggja ára.

Veifuðu óviðkomandi fána

Ekki er nóg með að EHF sektaði Dag heldur var króatíska handknattleikssambandið sektað um 10.000 evrur, jafnvirði liðlega 1,2 millj. kr., fyrir brot á opinberri dagskrá verðlaunaafhendingar EHF og fánareglum EHF þegar óviðkomandi fána var veifað við verðlaunaafhendingu Evrópumótsins. Króatar höfnuðu í þriðja sæti eftir sigur á íslenska landsliðinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -