Tumi Steinn Rúnarsson hefur samið við austurríska handknattleiksliðið HSG XeNTiS Lipizzanerheimat fyrir næsta keppnistímabil. Félagið greindi frá komu hins 26 ára gamla leikstjórnanda í dag. Tumi Steinn hefur undanfarin tvö ár leikið með Alpla Hard og á þeim tíma skapað sér gott orð í austurrískum handknattleik.
„Tumi er klassískur leikstjórnandi með mikinn leikskilning, góða yfirsýn og framúrskarandi leiðtogahæfileika,“ segir m.a. í tilkynningu HSG XeNTiS í dag.
Sjá einnig: Tumi Steinn rær á önnur mið
HSG XeNTiS, sem lengi vel nefndist HSG Bärnbach/Köflach, hafnaði í áttunda sæti austurrísku 1. deildarinnar í vetur og féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir tvo tapleiki fyrir deildarmeisturunum roomz JAGS Vöslau.
Tumi Steinn lék með Val og Aftureldingu hér heima áður en hann fór til Þýskalands í ársbyrjun 2022. Tumi Steinn lék í hálft annað ár með HSC Coburg í næstefstu deild áður en hann færði sig yfir landamærin til Alpla Hard í Bregenz.


