Kolstad gjörsigraði Drammen HK í síðari úrslitaleik liðanna í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í Drammenshallen í dag, 39:24. Kolstad vann þar með úrslitakeppnina og öðlast þar með rétt til þess að sækja um keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Elverum vann deildarkeppnina og varð norskur meistari í vor. Elverum heltist hins vegar úr lestinni í undanúrslitum úrslitakeppninnar eftir tap fyrir Drammen HK.
Kolstad vann fyrri viðureignina í Þrándheimi á laugardaginn, 34:30.
Kolstad hefur unnið úrslitakeppnina fjögur ár í röð.
Leikmenn Drammen áttu ekki möguleika í viðureigninni í dag. Ungir leikmenn liðsins stóðu ekki undir pressunni á heimavelli. Kolstad var sjö mörkum yfir í hálfleik, 18:11. Í síðari hálfleik voru allar flóðgáttir opnar og munurinn jókst á liðunum.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad og gaf sjö stoðsendingar. Sigvaldi Björn Guðjónsson, sem yfirgefur Kolstad í sumar, tók ekki þátt í viðureigninni í dag. Simon Jeppsson var markahæstur hjá Kolstad með 13 mörk.
Sigurjón Guðmundsson markvörður Kolstad varði 10 skot, 31%, ef marka má tölfræði á heimasíðu norska handknattleikssambandsins. Sigurjóni er hælt að hvert reipi í umfjöllun Topphandball.no sem hægt er nálgast neðst í þessari grein.
Ísak Steinsson varði fimm skot í marki Drammen, 22%, ef marka má tölfræði á heimasíðu norska handknattleikssambandsins.
Brutale Kolstad viste ingen nåde – vant sluttspillet igjen!



