- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hannes gefur ekkert eftir

Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Hann er einn af rótgrónum Gróttumönnum og hefur verið fyrirliði undanfarin ár. Hannes á 216 leiki að baki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319...

Lokahóf: Garðar Ingi og Szöke best hjá FH

Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði í gær. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað. Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar. Meistaraflokkur karla:Besti leikmaður: Garðar Ingi...

Molakaffi: Uscins, Reistad, Donni, Andreasson, skiptar skoðanir

Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins hefur samið við frönsku meistarana Paris Saint-Germain frá og með næstu leiktíð. Uscins, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með Hannover-Burgdorf í fjögur ár og á þeim tíma fest sig í sessi sem einn...

Óðinn Þór og félagar brotlentu – réttindalaus þjálfari meistaranna

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen brotlentu gegn HC Kriens-Luzern í úrslitaviðureignum um meistaratitilinn í Sviss. Kadetten, sem verið hefur meistari fjögur síðustu ár og vann deildina með fáheyrðum yfirburðum í vetur, tapaði þrisvar sinnum fyrir HC...
- Auglýsing-

Arnar Freyr og Reynir Þór leika til úrslita í Evrópudeildinni

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika til úrslita með MT Melsungen í Evrópudeild karla í handknattleik á morgun. Þeir tóku þátt í sigri Melsungen í dag á Flensburg í undanúrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg, 37:30. Melsungen...

Dagur Árni kominn í KA á nýjan leik

Dagur Árni Heimisson hefur snúið aftur heim í KA að lokinni eins árs veru hjá Val. Frá þessu greinir KA í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum í dag. Það voru stórtíðindi fyrir ári þegar Valur keypti Dag Árna frá KA. Hann...

Karlar – helstu félagaskipti 2026

Eins og undanfarin ár heldur handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskarla og...

Bruno framlengir samning sinn hjá KA

Markvörðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Bruno, sem er 24 ára, kom af krafti ungur inn í markið hjá meistaraflokksliði KA veturinn 2020-2021. Hann hefur síðan leikið 143 leiki fyrir KA í...
- Auglýsing-

Lögreglan sendir tvö lið á Norðurlandamótið

Ísland sendir karla- og kvennalið til þátttöku á Norðurlandamóti lögreglunnar sem hefst í Stafangri í Noregi mánudaginn 1. júní. Mótið stendur yfir fram á fimmtudag. Íslensku liðin eru á vegum Íþróttasambands lögreglumanna, ÍSL. Þjálfarar íslensku liðanna eru Árni Friðleifsson...

Arnór Þór stýrði Bergischer til áframhaldandi veru í efstu deild

Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann, innsiglaði áframhaldandi veru í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri á lánlausu liði HC Erlangen, 32:26, í Nürnberg. Bergischer HC endurheimti sæti sitt í 1. deild...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19488 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -