- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Við ofurefli var að etja – vonin er ein eftir

Íslenska landsliðið átti við ofurefli að etja í Scandinavium í kvöld þegar liðið mætti Evrópumeisturum Svía sem fóru með sigur úr býtum, 35:30, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:16. Við tapið dofnaði verulega yfir...

Aron verður ekki með á móti Svíum vegna meiðsla

Aron Pálmarsson verður ekki með íslenska landsliðinu í kvöld þegar það mætir Svíum í milliriðlakeppni heimsmeistaramótins í handknattleik í Scandinavium í Gautaborg. Aron meiddist á kálfa í leiknum við Grænhöfðaeyjar í fyrradag. Meiðslin eru það alvarleg að ekki reyndist...

Myndasyrpa-HM-23, glatt á hjalla

Hafi einhverntímann verið ástæða til þess að nota orðatiltækið, glatt á hjalla, þá var að í dag þegar stuðningsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik komu saman á Clarion Hotel Post í Gautaborg um miðjan daginn. Þar var hitað upp fyrir...

Portúgalar unnu öruggan sigur

Portúgal var ekki í erfiðleikum með Grænhöfðaeyjar í fyrstu viðureign dagsins í milliriðli tvö, þeim sem íslenska landsliðið í handknattleik er í. Portúgal vann með 12 marka mun, 35:23, eftir að hafa tekið öll völd á leikvellinum í síðari...
- Auglýsing-

Öll vötn falla til Gautaborgar

Gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir viðureign Íslands og Svíþjóðar á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla sem fram fer í Scandinavium íþróttahöllinni í Gautaborg í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Mikið er undir hjá íslenska landsliðinu sem má helst ekki...

Betri árangur en nokkru sinni fyrr á HM

„Við erum ofar væntingum og eins og staðan er nú þá verðum við í sextán efstu sem er besti árangur sem Barein hefur nokkru sinni náð á HM,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari Barein þegar handbolti.is sló á þráðinn til...

Dagskráin: Áfram er haldið í Grill 66-deildunum og á HM

Tveir leikir fara fram á Íslandsmótinu í handknattleik í kvöld, annar í Grill 66-deild kvenna og hinn í Grill 66-deild karla. Grill 66-deild karla:Safamýri: Víkingur - Valur U, kl. 17.30.Grill 66-deild kvenna:Dalhús: Fjölnir/Fylkir - Víkingur, kl 20.15. Staðan í Grill 66-deildunum...

Molakaffi: Aldís, Ásdís, Jóhanna, upphitun stuðningsmanna, Petrov

Íslendingaliðið Skara HF vann fjórða leik sinn í röð í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna þegar liðið lagði BK Heid, 40:23, á heimavelli. Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Skara og átti fjórar stoðsendingar auk þess að vera...
- Auglýsing-

Haukar lögðu Fjölnismenn á Ásvöllum

Ungmennalið Hauka lagði Fjölni í hörkuleik á Ásvöllum í kvöld í Grill 66-deild karla, 33:30, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15. Leikmenn Hauka voru sterkari þegar kom fram í síðari hálfleik og náðu mest...

Fram sterkara í síðari hálfleik í Kaplakrika

Ungmennalið Fram vann sannfærandi sigur á FH í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í Kaplakrika í kvöld en keppni er komin á fulla ferð eftir áramótin í báðum Grill 66-deildunum. Lokatölur í Kaplakrika voru, 29:22, fyrir Fram. FH var marki...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19364 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -