- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Úlfarsárdalur, Eyjar, Selfoss og Ásvellir

Þrír leikir fara fram í annarri umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Umferðinni lýkur á morgun. Að henni lokinni verður gert hlé á keppni í Olísdeildinni til 5. október vegna alþjóðlegrar landsleikjaviku sem haldin er í aðdraganda Evrópumóts...

Íslendingar koma víða við

Ribe-Esbjerg komst upp í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri á heimavelli, 31:25, á liðsmönnum Lemvig-Thyborøn Håndbold. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú af mörkum Ribe-Esbjerg og Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvisvar sinnum. Ágúst Elí Björgvinsson stóð...

Molakaffi: Hermansson, Guðrún Erla, Arnar Þór, Agnes, Telma, Lydía, Aþena

Cornelia Hermansson, markvörður, fékk loksins leikheimild með Selfossi í gær og verður þar með gjaldgeng með Selfossliðinu þegar það tekur á móti Val í Olísdeild kvenna í Sethöllinni á Selfossi í dag. Hermansson var ekki komin með leikheimild í...

Grill66-deild karla: Þór tapaði heima, HK og Víkingar unnu – Úrslit og markaskor kvöldsins

Þórsarar máttu bíta í það súra epli í kvöld að sjá Fjölnismenn taka bæði stigin með sér suður úr viðureign liðanna í Höllinni á Akureyri í kvöld, 29:27. Fjölnir var sterkari í leiknum og hafði m.a. fjögurra marka forskot...
- Auglýsing-

Grill66-deild kvenna: Byrjað með þremur leikjum – úrslit og markaskorarar

ÍR, Grótta og Víkingur unnu leiki sína í 1. umferð Grill66-deildar kvenna sem hófst í kvöld. Upphafsleikur deildarinnar var í Safamýri þar sem Víkingar hafa hreiðrað um sig eftir flutning Framara í Grafarholtið. Víkingar virtust kunna vel við sig...

Valsmenn efstir á nýjan leik

Valsmenn endurheimtu efsta sæti Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á FH í Kaplakrika í kvöld í síðasta leik 3. umferðar, 33:28. Valsmenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17:15. Valur er þar með stigi fyrir ofan...

Sex í einn kippu til Kórdrengja

Víst er að það hljóp verulega á snærið hjá liði Kórdrengja í dag þegar sex leikmenn fengu félagaskipti, aðeins nokkrum klukkustundum fyrir fyrsta leiksins liðsins á leiktíðinni í Grill66-deildinni. Ástþór Barkarson sem síðast var hjá Þrótti er kominn til liðs...

Flytur úr Grafarholti í Grafarvog

Hinn þrautreyndi handknattleiksmaður Sigurður Örn Þorsteinsson hefur sagt skilið við Fram og gengið til liðs við Fjölni, og flytur þar með úr Grafarholti í Grafarvog. Félagaskipti Sigurðar Arnar gengu í gegn í dag og ætti hann þar með að...
- Auglýsing-

Örvhent króatísk skytta komin til Þórs

Þór Akureyri hefur samið við örvhenta og hávaxna skyttu frá Króatíu, Josip Vekic, eftir því sem fram kemur á félagaskiptsíðu HSÍ. Vekic getur þar með verið klár í slaginn með Þórsurum gegn Fjölni í 1. umferð Grill66-deildarinnar í...

Fjölnir fær tvo Stjörnumenn að láni

Fjölnir hefur fengið tvo leikmenn Stjörnunnar að láni skömmu áður en flautað verður til fyrsta leiks liðsins í Grill66-deild karla. Fjölnir sækir Þór Akureyri heim í 1. umferð deildarinnar í kvöld. Um er að ræða tvo efnilega leikmenn, Benedikt Marinó...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19313 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -