Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

U18: Úrslit á fyrsta keppnisdegi HM

Úrslit leikja á fyrsta keppnisdegi heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik, liðum skipuðum leikmönnum 18 ára og yngri. Mótið hófst í morgun í Skopje í Norður Makedóníu og verður framhaldið á morgun. A-riðill:Svarfjallaland - Alsír 38:16.Svíþjóð - Ísland 17:22. Íslenska landsliðið mætir liði...

U18: Gríðarlega stoltur af liðinu eftir sigurinn

„Ég er gríðarlega stoltur af liðinu eftir þennan frábæra sigur á Svíum,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson annar þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í samtali við handbolta.is eftir fimm marka sigur liðsins á Svíum, 22:17, í upphafsleiknum á heimsmeistaramótinu sem...

U18: Frábær byrjun á HM – fimm marka sigur á Svíum – myndskeið

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, hóf þátttöku sína á heimsmeistaramótinu með frábærum leik og stórbrotnum sigri á sænska landsliðinu, 22:17, í Jane Sandanski íþróttahöllinni í Skopje í Norður Makedóníu. Íslensku stúlkurnar voru tveimur...

U18: Ísland – Svíþjóð: Streymi

Ísland og Svíþjóð mætast í fyrstu umferð A-riðils heimsmeistaramóts kvenna 18 ára og yngri í Jane Sandanski-íþróttahöllinni í Skopje í Norður Makedóníu kl. 10.30. Hér fyrir neðan er hægt að tengjast streymi frá leiknum. https://www.youtube.com/watch?v=37pS1DzXJE4
- Auglýsing-

U17: Hrepptu sjötta sæti eftir hörkuleik

U17 ára landslið Íslands í handknattleik karla hafnaði í sjötta sæti í handknattleikskeppni Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Slóvakíu. Liðið tapað fyrir Spánverjum með þriggja marka mun, 32:29, í hörkuleik um fimmta sætið í Zvolen í morgun. Íslensku piltarnir voru marki yfir...

Arnór ráðinn þjálfari Tvis Holstebro

Arnór Atlason fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik hefur verið ráðinn aðalþjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Team Tvis Holstebro til þriggja ára frá og með sumrinu 2023. Um er að ræða karlalið Holstebro. Félagið sagði frá þessu í tilkynningu í morgun. Arnór er...

Molakaffi: Hildur Öder, Gyða Kristín, Aron Breki, Axnér, axarskaft

Markvörðurinn Hildur Öder Einarsdóttir hefur framlengt samningnum sínum við handknattleiksdeild ÍR. Hildur kom til liðsins í desember og tók þátt í 10 leikjum með ÍR  í Grill66-deildinni. Hildur er uppalin á Selfossi en lék með Stjörnunni í Garðabæ áður...

Það er sprengja í töskunni!

Einum af þjálfurum sænska 18 ára landsliðsins í handknattleik varð heldur betur hált á svellinu er hann fór í gegnum vopnaeftirlit á Kastrupflugvelli við Kaupmannahöfn í dag. Þegar tollvörður spurði við hefðbundið eftirlit hvað væri í handtösku þjálfarans svaraði...
- Auglýsing-

U17: Sneru við taflinu í síðari og leika um 5. sætið

Piltarnir í U17 ára landsliðinu í handknattleik karla mæta Spánverjum í leik um 5. sætið á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Zvolen í Slóvakíu á morgun eftir að hafa unnið Slóvena, 26:23, í dag. Slóvenar mæta aftur á móti Slóvökum í...

U18: Allt klárt fyrir fyrstu orrustu á HM

„Ferðalagið gekk vel og allur farangur skilaði sér á leiðarenda. Við vorum komin inn á hótel hér í Skopje rétt eftir miðnætti,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson annar þjálfara U18 ára landsliðs kvenna í handknattleik við handbolta.is eftir fyrstu æfingu...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18962 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -